TK-17 klórkvoða 1150KG
Vörunúmer: 1476109
Listaverð
603.602 kr
Kvoðuhreinsiefni með klór
Háalkalískt klórkvoðuhreinsiefni til daglegra nota í fiskvinnslum, kjötvinnslum og öðrum matvælavinnslum. Vinnur mjög vel á fitu, próteinskánum og öðrum óhreinindum. Inniheldur klór sem gefur sótthreinsun og aukna hreinseiginleika. Myndar stöðuga froðu sem eykur viðloðunartíma við lóðrétta fleti.
- Inniheldur tæringarvörn.
- Má ekki nota á ál eða aðra léttmálma.
- Skráningarnúmer Umhverfisstofnunar: 98-279.
- pH-gildi: Óblandað >13,5.
- Ljósgulur tær vökvi.
Magn á vöru er ekki til
Við minnum á að hægt er að kaupa staðgengilsvörur hér fyrir neðan